Sjávarréttagratín með rækjum og hörpuskel (frá veitingastaðnum
LaugaÁsi)
FYRIR FJÓRA
600 g ýsuflök í raspi
120 g rækjur
120 g hörpuskel
olía til steikingar
100 g rifinn ostur
AÐFERÐ
Fiskur léttbrúnaður á pönnu. Rækjur og hörpuskel léttristaðar í hvítlauksolíu og
settar ofan á fisk. Fiskur settur í eldfast mót og rækjur og hörpuskel stráð
yfir.
Sveppasósa
50 g af skornum sveppum
4 dl af rjóma
4 matskeiðar Sherry
1 tsk. kjötkraftur
Maisena til þykkingar
Bearnaise-sósa
100 g brætt smjör
2 eggjarauður
½ dl vatn
¼ dl hvítvínsedik
1 tsk. kjötkraft
1 tsk. ferskt estragon
Aðferð
Öllu nema smjöri blandað saman og hrært yfir vatnsbaði, þar til blanda verður
létt og þykk. Þá er smjör sett varlega út í. Þegar sósur eru tilbúnar þá er
sveppasósu hellt yfir fisk og að síðustu bernaisesósa og rifinn ostur.
Gott er að bera fram með soðnum kartöflum eða villihrísgrjónum.
