Sítrus-engifermarineruđ stórlúđa međ mozzarellaosti, grillađri fennikku og kókoskúskús
fyrir fjóra

800 g stórlúđa
2 límónur (lime)
1 sítróna
1 appelsína
1 msk engifer
1 sítrónugras
ţurrkuđ límónulauf
2 kúlur mozzarellaostur
salt og pipar

Snyrtiđ stórlúđuna og skeriđ hana í steikur. Skrćliđ límónuna, sítrónuna og appelsínuna, skeriđ aldinkjötiđ í bita og setjiđ í skál. Raspiđ engiferiđ og sítrónugrasiđ út í ásamt límónulaufunum.
Marineriđ fiskinn í leginum í 20 mínútur. Kryddiđ međ salti og pipar og pakkiđ inn í álpappír ásamt niđurrifnum mozzarellaostinum. Grilliđ í um 8 mínútur.

4 fennikkur
4 msk ólífuolía
salt og pipar

Skeriđ fennikkuna í báta, pensliđ međ ólífuolíunni og kryddiđ međ salti og pipar. Grilliđ í um 4 mínútur á hvorri hliđ.

Kúskús eldađ samkvćmt leiđbeiningum á pakka nema ađ í stađ vatns notiđ kókosmjólk.