Sinnepsfiskur með fennikusósu


170 g fiskflök með roði t.d. lúða eða rauðspretta
1 tsk sinnep
dill, graslaukur og steinselja, klippt niður
salt og pipar

Skerið flökin í 2 stykki og fjarlægið bein.

Skerið rauf í fiskinn, smyrjið sinnepi á innri hliðina. Kryddið með salti, pipar og kryddjurtum. Leggið flökin saman, setjið þau í eldfast mót og bakið við 200°C í um 10 mínútur eða þar til roðið hefur brúnast og fiskurinn er steiktur í gegn.

Salat
150 g fennika
15 g majónes
50 g ab-léttmjólk
örlítið edik
1 tsk dill
salt og pipar


100 g paprikuhringir

Skerið fennikuna mjög smátt og útbúið sósu úr majonesi, ab-mjólk, ediki og kryddi.
Blandið þessu saman og berið fram ásamt fisknum og paprikuhringjum.