SINNEPS- OG HVÍTLAUKSLEGINN LAX
framreiddur með grænmetisspjóti og chili-mangósósu
600 g snyrt laxaflak
2-3 msk. mangó-chutney
Salt
Marinering
2 msk. dijonsinnep
2 hvítlauksgeirar
100 ml ólívuolía
Svartur pipar
1 lime-ávöxtur, safinn
og rifinn börkur
Grænmetisspjót
100 g súkkíni
100 g rauð paprika
100 g rauðlaukur
50 g sveppir
8 smátómatar
Byrjið á því að marinera laxinn. Skerið flakið í fjögur jöfn stykki. Saxið
hvítlauk fínt og blandið
saman við ólívuolíu. Smyrjið sinnepi jafnt á laxastykkin og kryddið með pipar.
Leggið á fat og
hellið limesafa og olíu yfir. Látið standa á köldum stað í klukkustund eða
meira. Saltið síðan laxinn og
grillið á vel heitu grilli í um það bil 5 til 8 mínútur á hvorri hlið, allt
eftir þykkt stykkjanna.
Í lokin skal laxinn penslaður með mangó-chutneyi. Skerið grænmetið í fallega,
jafna bita, þræðið upp
á spjót og penslið með olíu. Grillið með laxinum í nokkrar mínútur. Kryddið með
salti og pipar.
Mangósósa
200 ml mangómauk
1 msk. saxað kóríander
1 stk. chilipipar
1 lime, safinn
Salt
Pipar
Hreinsið fræ úr chilibelgnum og saxið mjög fínt. Hitið í olíu ásamt kóríander.
Setjið mauk saman við ásamt limesafa
og sjóðið í stutta stund. Kryddið með salti og pipar. Með réttinum má bera fram
ferskt salat og
brauð eða bakaða kartöflu handa þeim sem vilja.