Sesamhjúpaður karfi (fyrir 4)

700 g karfaflök, roð og beinlaus
1/2 tks salt
pipar
2 msk Dijon sinnep og örlítið vatn
1 dl Sesamfræ eða heslihnetuflögur
3 msk heilhveiti
1 msk matarolía

Skerið karfan í hæfilega stór stykki, saltið og piprið.
Hrærið saman sinnep og vatn og veltið fiskistykkjunum upp úr sinnepinu og síðan upp úr blöndu af  sesamfræjum og heilhveiti. Steikið í olíu, við frekar vægan hita, í 2-3 mínútur á hvorri hlið eða þar til fiskurinn er hvítur í gegn.

Berið fram veð soðnum kartöflum, spergilkáli og rifnum gulrótum.