Saltfiskur í rúsínum og sherry

fyrir 4-6

 

1,2- 1,5g saltfiskur

2 bollar rúsínur

1 bolli sætt sherry

Hveiti

Olía til steikingar

1 dl ólífuolía

1msk. paprikuduft

1pakki furuhnetur

 

Sherry og rúsínum er blandað saman í skál og látið marinerast í u.þ.b. einn sólarhring.  Saltfiskurinn er útvatnaður og beinhreinsaður og skorinn í þægilega bita.  Fiskinum er velt upp úr hveiti og brúnaður á pönnu.  Pannan er þrifin og snarphituð, 1dl af góðri ólífuolíu er hellt yfir og einni msk. af paprikudufti stráð yfir olíuna. Því næst er rúsínu-og sherryleginum hellt yfir og látið sjóða upp á pönnunni.

Fiskinum er raðað á eldfast fat og leginum hellt yfir, fatið er sett í 150°C heitan ofn í u.þ.b. 10 mín.  Þá er tíminn notaður til að rista á pönnu einum pakka af furuhnetum, sem stráð er yfir fatið þegar  fiskurinn kemur úr ofninum.  Með þessum rétti er gott að hafa grænmeti, brauð og bragðlétt rauðvín eða bara vatn.