Saltfiskur að hætti Baska
800 gr saltfiskur
5 meðalstórar soðnar og flysjaðar kartöflur
1 eggjarauða
2 dl ólífuolía
2 hvítlauksgeirar pressaðir
salt og pipar
1 egg
1tsk edik
1 tsk olía
3 tsk vatn
hveiti
brauðrasp
smjör
olía
Sósa
2 ½ dl niðursoðnir tómatar
3 rauðar paprikur skornar í litla bita
1 laukur fínt saxaður
3 hvítlauksgeirar fínt saxaðir
1 tsk timijan
½ tsk sykur
salt og pipar
ólífuolía
Látið saltfiskinn liggja í bleyti í sólarhring.
Sjóðið saltfiskinn og kælið hann og hreinsið burt roð og bein.Setjið
saltfiskinn, kartöflurnar, eggjarauðuna og hvítlaukinn í hrærivélarskál. Hrærið
vel saman og bætið ólífuolíunni í dropatali saman við, kryddið með salti og
pipar. Mótið 8 buff úr hrærunni. Þeytið saman egg, edik, olíu og vatn.Veltið
buffunum fyrst upp úr hveiti, þá eggjahrærunni og síðan raspinu, hitið pönnu og
steikið buffin upp úr olíu og smjöri, þar til þau eru fallega steikt, og haldið
heitum.
Sósan er næst löguð. Laukur og paprika steikt í olíu, þegar laukurinn fer að
verða glær er hvítlauknum bætt saman við. Maukið tómatana með gaffli og setjið
saman við og kryddið með sykri, timjan, salti og pipar. Sjóðið sósuna niður í
ca. 3 mín. Setjið buffin á fat og hellið sósunni yfir.