Saltfiskur „Portúgal“

800 gr útvatnaður saltfiskur roð og beinhreinsaður
hveiti
1 stk laukur fínt saxaður
olía
1 msk saxaður hvítlaukur
2 ½ dl rjómi
4 stk tómatar skornir í sneiðar
1 ½ dl hollensk sósa
2 msk rifinn gouda-ostur

Skerið saltfiskinn í ræmur 1x3 sm. Veltið saltfiskinum upp úr hveiti. Léttsteikið laukinn í olíunni á pönnu. Setjið saltfiskræmurnar á pönnuna, þegar þær fara að taka lit er hvítlauknum bætt á pönnuna. Hellið rjómanum á pönnuna og sjóðið saltfiskinn í 1-2 mín eða þangað til sósan fer að þykkna. Setjið saltfiskinn í eldfast fat og raðið tómatsneiðum ofan á fiskinn. Hellið hollensku sósunni yfir og stráið ostinum yfir. Setjið fatið undir grill og látið ostinn bráðna.