Saltfiskur með sellerírótarstöppu og laukblöndu
fyrir 4
800 g
saltfiskhnakkar, vel útvatnaðir
svartur pipar
ögn af hveiti
ólífuolía
brauðmylsna
hvítlaukssmjör
Skerið saltfiskinn í fjóra jafna bita og kryddið örlítið með svörtum pipar. Veltið þeim upp úr hveiti og steikið upp úr ólífuolíunni, um það bil tvær mínútur á hvorri hlið. Færið fiskinn upp á fat og setjið brauðmylsnu og hvítlaukssmjör ofan á. Setjið fatið í 170 gráðu heitan ofn í um það bil 15 mínútur.
Sellerístappa
1 kg
sellerírót
750 g gulrætur
1 l rjómi
2 msk hunang
1 msk grænmetiskraftur
1 tsk kjötkraftur
6 greinar ferskt timjan tekið af stilkunum
svartur pipar
Skrælið sellerírót og gulrætur og skerið í litla bita. Setjið allt hráefni í pott og sjóðið þar til það er mjúkt. Færið það yfir í matvinnsluvél og hrærið vel. Þykkið það síðan örlítið með Maggi kartöflumús.
Laukblanda
2 laukar
skornir í báta
12 kirsuberjatómatar, skornir í fernt
16 ólífur
ólífuolía
hvítlaukssmjör
Maldonsalt
svartur pipar
Léttsteikið lauk, tómata og ólífur í hvítlaukssmjöri og ólífuolíu. Kryddið örlítið með Maldonsalti og pipar. Þá er rétturinn tilbúinn.