Saltfiskur frá Elvari Reykjalín á Hauganesi
FISKURINN
4 saltfisksteikur
80-120 g (frá Hauganesi)
4 eyruggar (frá Hauganesi)
8 saltaðar gellur
1 egg
smá hveiti
brauðraspur
smjör
Steikurnar eru settar í lofttæmdan poka og svolítið af smjöri með. Eldaður við
vægan hita í vatnsbaði. Eyruggunum
er velt upp úr hveitinu, egginu og þá brauðraspinum. Þeir eru svo djúpsteiktir
gullinbrúnir í olíu.
Gellurnar eru skornar í tvennt og steiktar í smjöri á pönnu með einu
hvítlauksrifi.
RÓFUSTAPPAN OG SYKRUÐU RÓFURNAR
4 litlar rófur
smjörkubbar
hrásykur
gróft borðsalt
Þrjár af rófunum eru bakaðar heilar á salti í ofni við 160° C, þá eru þær
skornar í tvennt, mokað innan úr
hýðinu og það sett í matvinnsluvél, ásamt nokkrum köldum smjörkubbum, smá
sítrónusafa og örlitlum hrásykri.
Hráa rófan er rifin niður í rifjárni og stráð yfir hana sykri og sítrónusafa.
DILLMAUKIÐ
1 búnt dill
2 skalotlaukar
2 dl rjómi
1 msk. eplaedik
frá Claus Meyer (fæst í Hagkaupum)
1 g salt
Dillið er sett í sjóðandi vatn í 10 sekúndur og dembt svo ofan í krapavatn. Lagt
á stykki í kæli til
þerris. Laukurinn eldaður í örlítilli olíu á pönnu þar til hann er glær, þá er
rjómanum hellt yfir
og látið sjóða þar til rjóminn verður á þykkur eins og sósa. Allt sett í
matvinnsluvél ásamt örlitlu salti
og eplaediki í 3-4 mínútur. Kælt að stofuhita. GOTT MEÐ Beikon, stökksteikt og
saxað. Gaman að gefa með
smjörsoðinn lauk, litla sýrða perlulauka, linsoðið egg (6,5 mín í sjóðandi
vatni) og smjörsósu kryddaða með
eplaedikinu góða frá honum Claus. Svo er flott að skreyta réttinn með ferskum
dilltoppum.
