Saltfiskur að hætti Katalóníubúa
800 g úrvals saltfiskur,
útvatnaður
4 msk. hveiti
1 dl ólífuolía
hvítur pipar úr kvörn
Skerið saltfiskinn í jafna bita og veltið honum upp úr hveiti. Látið ólífuolíuna
í djúpa pönnu og hitið vel. Athugið að olían þarf að vera mjög heit. Steikið
saltfiskinn upp úr olíunni fyrst á annarri hliðinni og síðan á hinni, snúið
aðeins einu sinni við á meðan á steikingu stendur. Ef saltfiskurinn er ekki
fullsteiktur, en orðinn gullinbrúnn og stökkur að utan, setjið hann þá inn í
heitan ofn í nokkrar mín. Kryddið með pipar eftir smekk og berið fram á
katalónskri sósu.
Katalónsk sósa
3–4 stk. skalotlaukar
7–12 stk. hvítlauksgeirar
1 stk. rauð paprika
75 g beikonsneiðar
kvistur af rósmarín
6 stk. plómutómatar (eða úr dós)
2 msk. jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
1 dl rauðvín
3 dl kjúklinga- eða fiskisoð
100 g möndluspænir
salt og svartur pipar úr kvörn
1 búnt steinselja
Aðferð
Afhýðið skalotlauka og skerið í sneiðar. Afhýðið og skerið hvítlauksgeirana í
sneiðar. Fræhreinsið paprikuna og skerið í sneiðar. Skerið beikonsneið arnar í
þunna strimla. Fjarlægið rósmarínnálarnar af stilknum. Afhýðið plómutómata með
því að rista grunnan kross ofan á þá, látið þá síðan ofan í sjóðandi vatn í
hálfa mínútu og að lokum í ískalt vatn til þess að hýðið losni af. Ef notaðir
eru niðursoð nir tómatar þá eru þeir skornir í sneiðar. Látið ólífuolíu í pott
og hitið við miðlungshita. Létt steikið skalotlauk, hvítlauk, papriku, beikon og
rósmarín í olíunni. Bætið tómötum, rauðvíni og soði í pottinn og sjóðið við
vægan hita í 15–20 mín.
Ristið möndluspænina gullinbrúna á þurri viðloðunarfrírri pönnu. Myljið
möndluspænina og látið út í pottinn. Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk.
Að lokum, áður en sósan er framreidd, blandið þið saxaðri steinselju saman við.
Meðlæti
4–8 stk. skalotlaukar
8 stk. hvítlauksgeirar
jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía)
Afhýðið skalotlauka og hvítlauk og sjóðið heila ólífuolíu í 20 mín. eða þar til
þeir eru orðnir mjúkir. Setjið laukana ofan á saltfiskbitana þegar þeir eru
bornir fram. Athugið að olíuna er hægt að nota sem laukolíu til steikingar eða
pensla á brauð. Skreytið saltfiskinn með rósmarínkvisti og að lokum smá slettu
að ólífuolíunni góðu frá Monte Vibiano.