Saltfiskur með sólþurkuðum tómötum og rósmarin.

 

Hráefni:

800g saltfiskur(u.þ.b. 2 pakningar),

útvötnuð aðeins betur (sjá leiðbeiningar meðar).

400g kartöflur afhýddar
2-3 msk. ólífuoía
salt, pipar og rósmarin
1 dós niðursoðnir tómatar saxaðir
½ dós sólþurrkaðir tómatar
(1/2 dl olía úr dósinni)
2-3 tsk.tómatþykkni ( tomato paste)
1 stk. laukur meðarstór
3-4 stk. hvítlauksgeirar
3-4 msk. rauðvínsedik
1-2 msk. púðursykur



Aðferð:

Kartöflur skornar í sneiðar og settar í eldfast mót, olía sett yfir og kryddað með salti, pipar  og rósmarín. Forhitað ofninn og bakið við 180° C í 18-20 mínútur. Tómatar, tómataþykkni og sólþurrkaðir tómatar ásamt hluta af olíunni, söxuðum lauk, perssuðum hvítlauk, ediki og púðursykri sett út í pott og látið sjóða smá stund. Smakkað til og saltað og piprað eftir smekk. Saltfiskflök skorinn í 100g bita og raðað ofan á kartöflurnar þegar þær eru tilbúnar og bakað í 11-13 mínútur í viðbót. Borið fram með tómatsósunni og fersku grænu salati.  


*útvötnun ( salt innihald ) flaka miðast við suðu, til að steikja eða baka í ofni er gott að útvatna flökin aðeins beturí ísköldu vatni í 2-4 klst. fyrir eldun (2ltr vatn / 1kg fiskur.)