Saltfiskur Laurentine (fyrir 4)
Morue Laurentine

500 g saltfiskur
600 g tómatar
200 g paprikur
3 hvítlauksrif
4 steinseljugreinar
1 glas matarolía
3 msk hveiti
Útvatnið saltfiskinn. Skerið hann í ferhyrnda bita. Takið innan úr tómötunum og skerið þá í stóra bita. Skerið paprikurnar langsum í 8 bita. Saxið hvítlaukinn og myljið steinseljuna. Hitið olíuna í pönnu og steikið saltfiskbitana í 15 mínútur (eftir að hafa velt þeim upp úr hveiti). Færið fiskinn upp og setjið tómatana, paprikuna, hvítlaukinn og steinseljuna út í. Setjið grænmetið í eldfast leirfat og saltfiskinn ofan á. Látið krauma í 5 mínútur og berið fram í fatinu.