Saltfiskur í sparifötunum

500 g saltfiskur, hreinsaður, soðinn
250 g hrísgrjón, Uncle Ben´s
2½ dl rjómi
200 g ostur, mozzarella, rifinn
1 msk ólífuolía
1 stk paprika, lítil græn
1 stk laukur, stór, saxaður
½ stk tómatar, niðursoðnir, dós
pipar, svartur úr kvörn, McCormick
Matreiðsla
Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbeiningunum á pakkanum og kælið þau dálítið. Mýkið
lauk og papriku í olíunni á pönnu, en látið það ekki brúnast. Bætið tómötunum
við og blandið öllu vel saman. Smyrjið eldfast mót og setjið helming
hrísgrjónanna í botninn. Hellið grænmetinu ofan á og stráið á það pipar. Setjið
saltfiskinn ofan á og loks það sem eftir er af hrísgrjónum efst í mótið. Hellið
rjómanum út á og bakið réttinn í 180°C heitum ofni í 10 mínútur. Stráið þá
ostinum ofan á og bakið áfram þar til hann er gulbrúnn.
Framreiðsla
Berið réttinn fram með brauði og smjöri eða með heitu hvítlauksbrauði.