Saltfiskréttur með Salatfeta.

8 stykki saltfiskbitar (útvatnaðir)
3 laukar
2-3 hvítlauksrif
1-2 dósir niðursoðnir tómatar
1 peli rjómi
basilíka
Salatfeti

Laukurinn er steiktur í smjöri ásamt hvítlauksrifunum, niðursoðnu tómötunum bætt í og rjómanum.
Kryddað með basilíku að vild.
Saltfiskurinn er roðflettur og settur í sjóðandi vatn í 2 - 3 mínútur.
Saltfisknum er þá raðað í eldfast mót - lauktómatsósan sem áður var búin til er sett ofaná og salatfeta þar yfir. Sett í ofn í ca. 20-30 mínútur við 200°C .
Borið fram með hrísgrjónum, góðu salati og hvítlauksbrauði.

Salat
Klettasalat
Tómatar
Agúrkur
Púrrulaukur
Allt skorið í smátt,skolað vel úr köldu vatni og Salatfeta blandað samanvið.