Saltfiskmús (Brandade)

Eitt kíló af mikið útvötnuðum saltfisk er roðflett. Eitt rif af hvítlauk er pressað ofan í 500 ml af ólífuolíu og hitað, þó ekki mjög mikið. 300 ml af mjólkur-rjómablandi er hitað í öðrum potti, þó ekki upp að suðu. Þorsknum (ósoðnum) er komið fyrir í þungum víðum potti við lágan en stöðugan hita. Dálitlu af hvítlauksolíunni er hellt yfir og hrært inn í fiskinn með trésleif. Því næst er dálitlu af rjómanum hellt útí og hrært vel. Þannig er haldið áfram til skiptis þangað til allur rjóminn og olían eru komin út i saltfiskin. Útkoman á að vera fínleg saltfiskmús. Mikilvægt er að hafa sama væga hitann á öllum hlutum til að draga úr hættunni á að olían skilji sig. Rétturinn er kryddaður með pipar og múskati eftir smekk og salti ef þurfa þykir. Nýpressuðum sítrónusafa er hrært út í og ef til vill meiri pressuðum hvítlauk.
Ristið snittubrauðsneiðar í ofni og berið fram með músinni.
Flott er að smyrja músinni á snittubrauðið og skreyta með ólífu eða trufflusvepp

Saltfiskmús (Brandade)