Saltfiskur í rjómasósu

800 g saltfiskur, roð- og beinhreinsaður
1 1/2 bufflaukur
1 gulrót
2 msk steinselja
2 msk tómatsósa
4 dl rjómi
4 hvítlauksgeirar
2 msk sojasósa
2 msk smjör

Skerið saltfiskinn í þunna strimla. Bræðið smjörið á pönnu og steikið laukinn upp úr því. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur skal bæta gulrótum við en þær þarf að skera í litla bita og lata malla. Eftir það er fiskurinn settur út í og látinn liggja í smá stund og svo er rjómanum bætt við og svo hvítlauknum og tómatsósunni. Þegar þetta er farið að þykkna er steinseljunni og sojasósunni bætt út í.