Saltfiskur að hætti pitsubakarans
1 kg saltfiskur, afvatnaður og skorinn í stykki
6 msk ólífuolía
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir mjög smátt
2 dósir tómatar, saxaðir
1 tsk oregano, þurrkað
nýmalaður pipar
salt
nokkur fersk basilíkublöð, rifin.
Ofninn hitaður í 200°C. Vatn hitað að suðu í
potti, fiskurinn settur út í og
látinn malla við hægan hita í um 10 mínútur en þá er hann tekinn upp með
gataspaða, látinn kólna, og síðan er hann roð- og beinhreinsaður. Á meðan
fiskurinn sýður eru 4 msk af olíunni hitaðar í potti með hvítlauknum og
látið krauma við meðalhita þar til hvítlaukurinn er orðinn dálítið gullinn.
Tómatarnir settir út í ásamt leginum úr dósunum, oreganoinu og pipar og
salti. Hitað að suðu og látið malla í um 20 mínútur. Þá er basilíkunni hrært
saman við. Dálitlu af sósunni hellt í eldfast fat, nægilega stórt til að
rúma fiskinn í einföldu lagi. Fiskstykkjunum raðað ofan á, afganginum af
sósunni hellt yfir, og 2 msk af olíu dreypt yfir allt saman. Sett í ofninn
og bakað í um hálftíma.