Saltfiskur með hvítlauk, chili og
ólífum
800 g saltfiskur, útvatnaður
hveiti
8-16 hvítlauksrif, skorin í sneiðar
1-2 stk chilipipar, fræhreinsaður og skorinn í bita
1 dl svartar olífur
1 dl hvítvín
steinselja
Eins og í fyrri uppskrift er bitunum velt upp úr hveiti, þeir steiktir í
ólífuolíu og settir í eldfast mót.
Ristið hvítlauk og chilipipar á pönnu í olífuolíu. Bætið ólífunum út í og síðan
hvítvíninu og látið sjóða. Hellið leginum yfir saltfiskinn í mótinu og látið
hann inn í ofn í nokkrar mínútur. Stráið saxaðri steinselju yfir við
framreiðslu.