Reykt ýsa með Mirin sósu
Reykt bragð með sætri sósu fyrir fjóra



Mirin er sætt, japanskt hrísgrjónavín (sake), sem er notað töluvert í japanskri matargerð á svipaðan hátt og sojasósa, en ekki haft til drykkjar.


Mirin sósa
1,5 dl Mirin
1 dl Sake hrísgrjónavín (eða mysa)
2 dl Miso súpuþykkni (paste)
1-1,5 dl strásykur, eftir smekk



Mirin og Sake er soðið í potti í u.þ.b. 30 sek, svo að vínandinn gufi upp. Hitinn er lækkaður og Miso súpuþykknir er leystur upp í vökvanum. Þá er hitinn hækkaður og strásykurinn hrærður saman við. Passa þarf að hann brenni ekki við. Þegar sykurinn er uppleystur er potturinn tekinn af hellunni og látinn bíða við stofuhita.

Reykt ýsa með Mirin sósu
4 flök reykt ýsa u.þ.b. 200 g hvert
3 dl Mirin sósa (800 gr)


Reykta ýsan er sett í Mirin sósuna til marineringar í 1 – 3 daga í kæli. For hitið grillið í ofninum. Strjúkið mestu sósuna af fiskinum, en ekki alla. Setjið svo fiskinn undir grillið þar til hann verður dökkbrúnn. Fiskurinn er mjög góður svona, en einnig má gegnumsteikja hann í ofni í 5 – 10 mínútur við 200°C hita.
Berið fram með hrísgrjónum, grænmeti og restinni af Mirin sósunni. Verði ykkur að góðu.