Rauð lúða

7-800 g stórlúða í sneiðum
4 msk rauð pestósósa
10-12 sólþurrkaðir tómatar í olíu
nýmalaður pipar
salt
2 rauðlaukar
2 rauðar paprikur
1 sítróna

Lúðan skorin í bita, 3-4 cm á kant, og þeir smurðir á tveim hliðum með
pestósósu. Settir á disk, 2-3 msk af olíunni sem tómatarnir voru í dreypt
yfir, og kryddað með pipar og salti. Látið standa í 15 mínútur eða svo.
Rauðlaukarnir helmingaðir og síðan skornir í þunnar sneiðar og paprikurnar
fræhreinsaðar og skornar í ræmur. Sólþurrkuðu tómatarnir saxaðir eða skornir
í ræmur. Stór panna hituð vel. Lúðubitarnir settir á hana ásamt olíunni og
steiktir í 1 mínútu. Hitinn lækkaður og laukurinn, paprikan og sólþurrkuðu
tómatarnir sett á pönnuna, til hliðar við eða á milli lúðubitanna. Steikt
áfram við meðalhita í 3-4 mínútur en síðan er lúðubitunum snúið og steikt
áfram þar til fiskurinn er rétt steiktur í gegn og grænmetið meyrt en ekki
farið að brenna. Sítrónan skorin í báta, safa úr 1-2 bátum dreypt yfir,
smakkað til með pipar og salti og borið fram með grænu salati, kartöflum og
afganginum af sítrónubátunum.