Rækjurauðspretturúllur með Delfí hvítlauksmauki (fyrir fjóra)

4 rauðsprettuflök, roðflett og skorin í tvennt eftir endilöngu
200 g rækjur, smátt saxaðar
1 uppskrift Delfí hvítlauksmauk (sjá neðar)
1 dl olía með sítrónubragði
nýmulinn svartur pipar
sjávarsalt

Delfí hvítlauksmauk

3-4 hvítlauksrif, söxuð smátt (mega vera fleiri)
1/2 búnt steinselja, smátt söxuð
1 dl mjólk eða matreiðslurjómi
nýmulinn svartur pipar
sjávarsalt

Setjið allt innihald ískál og hrærið því vel saman.
Bragðast vel með fiski, kjöti, pasta, grænmeti og brauði eða kexi.

 

Hitið ofninn í 180°C. Blandið rækjunum saman við Delfí hvítlauksmaukið og setjið 2 matskeiðar af mauki á hvert fiskflak. Rúllið flökunum upp og raðið í eldfast mót. Dreypið olíu yfir. Saltið og piprið að smekk. Bakið í ofni í u.þ.b. 20 mínútur. Berið fram með kartöflum eða hrísgrjónum og salati.