Rækjur í pítubrauði
(fyrir 4)
frá Osta- og smjörsölunni

175 g rækjur
4 pítubrauð
1/2 - 1 salathöfuð
50 g vorlaukur eða annar laukur
1 msk engiferduft eða söxuð fersk engiferrót
1 msk söxuð fersk mynta
110 g hreinn rjómaostur
100 g 18% eða 38% sýrður rjómi
nýmalaður svartur pipar


Látið vatnið síga vel af rækjunum og þerrið þær á eldhúspappír. Þvoið, þerrið og saxið salatið. Hrærið saman rjómaosti og sýrðum rjóma. Blandið lauk, salati, rækjum, myntu og engifer saman við. Smakkið og setjið pipar í eftir smekk. Opnið pítubrauðið og setjið fyllinguna í. Þetta er góður forréttur og einnig sem sjálfstæður smáréttur.