Rækjur frá Bombay (fyrir 4)
Frá Osta- og smjörsölunni
750 g rækjur
1 saxaður laukur
1 söxuð paprika
30 g smjör
2 tsk karrí
2 msk hveiti
21/2 dl rækju- eða fisksoð
2 msk tómatkraftur
1 dl rjómi
100 g hreinn rjómaostur
salt
Látið lauk og papriku krauma í smjörinu þar til það verður vel meyrt. Stráið
karríinu yfir og látið krauma smástund. Hrærið hveitinu saman við. Hellið soðinu
út í og látið suðuna koma upp. Sjóðið í nokkrar mín. Hrærið tómatkrafti og rjóma
út í. Bætið rjómaostinum út í og látið hann bráðna. Setjið rækjurnar út í og
látið réttinn standa örlitla stund. Smakkið og saltið ef þörf er á. Berið
réttinn fram með soðnum hrísgrjónum.
