Rækjupottréttur (fyrir 6)
Frá Osta- og smjörsölunni


50 g smjör
40 g hveiti
2 bollar mjólk
1 tsk salt
1/2 tsk Worchestershiresósa
250 g Grettir sterki, rifinn
6 harðsoðin egg, sneidd
500 g rækjur


Bakið upp sósu úr smjöri, hveiti og mjólk. Setjið Worchestershiresósuna út í og hrærið. Setjið ostinn út í og hrærið í þar til hann er bráðinn. Setjið eggin og rækjurnar út í. Smakkið réttinn og saltið hann ef þörf er á. Berið réttinn fram með ristuðu brauði.