Megin hráefni                                                           Rétturinn tilbúinn

Rækjurkokteill með pipargrillaðri hörpuskel í Tortillas körfu

Mér hefur alltaf fundist rækjukokteilar með ristuðu brauði frekar góðir, reyndar  mjög algengir og þar af leiðandi dálítið þreyttir. Þegar ég ásamt konunni minni heimsóttum Sitkes á Spáni þá fékk ég hugmynd sem mér finnst færa alveg nýtt líf í þennan rétt. Pipargrilluð hörpuskelin og náttúrulegur skelfiskssafinn gefa þetta sérstakta sjávarbragð sem færir mann nær hafinu. Til að forma tortillas körfuna  er gott að nota skál eða glas á hvolfi með hliðum sem að halla út á við. Eftir að tortillas karfan hefur verið bökuð þá skal fóðra innhliðarnar með salatblaði, t.d. lambhagasalati, og þá er minni hætta á að karfan blotni af safanum úr rækjunum. Ef bera á fram vín með þessum rétti þá mæli ég með þurru spænsku Cava freyðivíni – flest annað vín er eiginlega of áhrifamikið.

Uppskrift fyrir 4
Old el Paso Tortillas, 4 kökur.
Frosnar rækjur 200 – 250 gr, þurfa ekki að vera stórar.
Frosin risahörpuskel frá Snæfiski, 4 – 8 stk.
Ferskt dill.
Kavíar 1 krukka.
Sýrður rjómi, 1 dós.
Bla Band ”Sauche fraiche” Lemon og dill eða einhverja aðra af ”sauche fraiche” frá Bla Band sem áhugi væri á að prófa. Cayenne pipar , 1/2 tsk af eða Spænsku pimento.
Oli Extra virgin olífuolia, ca 2 matsk.
Lambhagasalat.

Við hendina þurfa einnig að vera 4 hentugar skálar eða glös með hliðunum hallandi út til að forma tortillas körfurnar.

1. Byrja á að þíða hörpuskelina í óopnuðum pokanum við stofuhita – ætti að gerast á ca. 1 klst.
2. Stillið ofninn á 175°. Blandið Bla Band sósuna og sýrðan rjóma saman í skál og hrærið hraustlega saman. Saxið frosnar rækjurnar og blandið saman við Bla Band sósuna. Opnið nú pokann með hörpuskelinni og hellið vökvanum saman við rækjurnar í sósunni.
3. Setjið glösin eða skálarnar á hvolf og formið Tortillas lauslega utan um. Skvettið smá vatni yfir og pressið lauslega saman með höndunum. Setjið síðan glösin/skálarnar inn í ofninn – athugið á 5 mínútna fresti og takið út þegar tortillurnar hafa fengið á sig gullinn lit og hafa stífnað upp. Látið kólna og fjarlægið tortillurnar varlega af glösunum/skálunum. Ef tortillurnar hafa fests við glösin/skálarnar reynið þá að skrúfa þær varlega lausar áður en þeim er lift upp. Ef þetta gerist þá hefur verið notað of mikið vatn á tortillurnar og því gott að nota minna næst.
4. Hitið upp grillpönnu á háan hita. Penslið aðra hliðina á hörpuskelinni með Oli olífuolíunni og stráið cayenne pipar yfir. Þegar grillpannan hefur hitnað setjið þá hörpuskelina á pönnuna með olíu og piparhliðinni niður og steikið í 30 sek. Penslið með olíunni á meðan yfir þá hlið sem snýr upp og steikið einnig á þeirri hlið í 30 sek. Takið af hitanum og látið bíða í ca. 1 mínútu án þess að hafa lok á.
5. Hrærið núna vel í rækjublöndunni. Setjið salatblað inn í hverja körfu og skiptið rækjublöndunni jafnt niður á körfurnar. Skreytið með fersku dilli, örlitlu af kavíar, ekki of miklu því þá verður rétturinn of saltur, og kórónið síðan með pipargrillaðri hörpuskel.