Portúgalskur saltfiskréttur (Bacalhau com Natas)
600 g saltfiskur, afvatnaður
600 g kartöflur
400 g laukur
3 msk olía
500 ml matreiðslurjómi eða mjólk
3 msk smjör, og meira til að smyrja fatið
3 msk hveiti
nýmalaður pipar
örlítið salt
50 g rifinn ostur
Ofninn hitaður í 210 gráður. Fiskurinn soðinn í
8-10 mínútur, látinn kólna
ögn, og síðan roðflettur og beinhreinsaður og losaður sundur í flögur.
Kartöflurnar afhýddar og skornar í mjóa geira eða fremur litla teninga.
Laukurinn skorinn í þunnar sneiðar. Olían hituð á stórri pönnu og laukurinn
og kartöflurnar steikt við vægan hita þar til kartöflurnar eru nærri orðnar
meyrar, en þær eiga ekki að brúnast. Þá er pannan tekin af hitanum. Smjörið
brætt í potti, hveitinu hrært saman við og sósan bökuð upp með
matreiðslurjóma eða mjólk. Krydduð með pipar og svolitlu salti (alls ekki
miklu, nema saltfiskurinn hafi verið afvatnaður mjög rækilega). Látið malla
í a.m.k. 5 mínútur. Eldfast fat smurt vel með smjöri. Dálítil sósa sett á
botninn, þá lag af fiski, svo kartöflur og laukur, meiri fiskur og meiri
kartöflur/laukur. Afganginum af sósunni hellt jafnt yfir og að síðustu er
osti stráð yfir allt saman. Sett í ofninn og bakað í 15-20 mínútur, eða þar
til osturinn er gullinbrúnn.