Pönnusteiktur saltfiskur með pestó, bacon og hnetusmjöri

Fiskur
720 g saltfiskur, skorinn í skammta
4 msk polenta, valsaður maís
12 stk sykurbaunir, skornar í strimla
12 stk beikonsneiðar, djúpsteiktar og þerraðar á pappír
8 stk mini-maís, forsoðinn
4 stk grænn aspass, forsoðinn
2 stk rauðlaukar, skornir í strimla
1 stk stór sæt kartafla
olía til steikingar
salt og svartur pipar úr kvörn
Hnetusmjör
1 dl smjör, lint
1 dl salthnetur, saxaðar
½ dl sætt hvítvín
2 msk Malibu líkjör
Pestó
2 msk ólífuolía
1 msk ferskt basil, fínt saxað
10 stk grænar ólífur, steinlausar
2 stk hvítlauksrif, flysjuð





Pestó
Ólífur og hvítlaukur er sett í matvinnsluvél og maukað vel ásamt basil og ólífuolíu. Geymt í lokuðu íláti á kæli.

Fiskur
Saltfiskurinn er þerraður, vellt uppúr polenta og steiktur við háan hita í olíu á pönnu. Léttkryddaður með svörtum pipar og smurður með pestó áður en hann er settur inn í ofn í 3-4 mínútur við 180°C. Kartöflurnar eru skornar í þunna hringi, steiktar í olíu og kryddaðar eftir smekk með salti og pipar. Rauðlaukur og sykurbaunir er steikt saman og sett undir og yfir saltfiskinn er hann er borinn fram. Aspas og maís er steikt við háan hita á pönnu í stuttan tíma, léttkryddað og borið fram strax. Rétturinn er svo borinn fram með stökku bacon.

Hnetusmjör
Hneturnar eru ristaðar á þurri pönnu. Líkjör og hvítvíni er bætt útá og suða látin koma upp og standa í örskamma stund. Smjörinu er bætt útá og það látið bráðna við vægan hita. Sjörið á að bera fram á meðan hneturnar er ennþá stökkar.