Plokkfiskur að hætti Úlfars Eysteinssonar

Þorskflök (ýsa, lúða)
Laukur (saxaður)
Salt
Pipar
Karrý
Mjólk
Smjörbolla (til þykkingar á sósu)
Kalt smjör
Kartöflur soðnar og sneiddar
Rúgbrauð (seyddu)

Þorskurinn soðinn og soðinu hellt frá. Mjólkin hituð að suðu ásamt lauknum og kryddinu, hluti af sósunni tekinn frá og fisknum bætt út í sósuna ásamt kartöflum og hrært vel saman við. Auka sósan er notuð ef plokkfiskurinn er of þurr. Kryddi er bætt út í eftir smekk. Sumir vilja mikinn pipar en aðrir minna. Í restina set ég kalt smjör út í til að fá mýkri áferð.

Til að gratínera plokkfiskinn þarf Hollandaissósu eða Bernaissósu og ost. Bakað þar til rétturinn verður gullinbrúnn.