Ofnbökuð ýsa, með tómötum og parmesanraspi (fyrir 4)
HRÁEFNI: AÐFERÐ:
300 g pasta (slaufur)
600 g ýsuflak, beinhreinsað og roðflett
¼ tsk natríumskert salt
½ tsk nýmalaður pipar
3 tómatar (stórir)
2 msk brauðrasp
1 msk parmesanostur
2 msk steinselja
2 msk ólífuolía
Hitið ofninn í 175 °C. Skerið fiskinn í sneiðar og raðið í eldfast mót.
Kryddið með salti og pipar.
Skerið tómata í sneiðar og raðið þeim á fiskbitana. Blandið saman brauðraspi,
rifnum parmesanosti, saxaðri steinselju og ólífuolíu. Smyrjið blöndunni ofan á
tómatana.
Bakið í 175°C heitum ofninum í 15-20 mínútur, eftir þykktinni á fiskstykkjunum.
Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakka.
Hver skammtur inniheldur:
Hitaeiningar 465 kkal
Prótein 39 g
Kolvetni 60 g
Fita alls 8 g
Mettuð fita 2 g
Trefjar 4 g
Natríum/salt 480 mg/1,2 g
Kólesteról 72 m