Ofnbökuð tandoriýsa (fyrir 4)

HRÁEFNI:
1 laukur
2 hvítlauksrif
2 msk engifer (ferskt)
2 msk sítrónu- eða limesafi
1 box jógúrt án ávaxta
1 tsk kóríanderduft eða
1 msk ferskt kóríander
¼ tsk cayennepipar
1 tsk kúmínduft (cumin)
1 msk papríkuduft
¼ tsk kardimommuduft
½ tsk salt
600 g ýsuflök
400 g spergilkál

AÐFERÐ:
Blandið saman í matvinnsluvél lauk, hvítlauk, engifer og sítrónusafa. Blandið saman við jógúrtina smátt söxuðu kóríander og kryddi og hrærið saman við maukið.
Roðflettið og beinhreinsið ýsuflakið og skerið í hæfilega bita. Hellið jógúrtkryddblöndunni yfir og látið standa í kæli í a.m.k. 4 klst.
Takið fiskinn úr kryddblöndunni og raðið í eldfast mót. Bakið í 220 °C heitum ofni í 8-10 mínútur.
Skiptið spergilkálinu í greinar og sjóðið í 4-5 mínútur í söltu vatni. Berið fram með fiskinum ásamt lime- eða sítrónubátum og kartöflum eða hrísgrjónum.


Hver skammtur inniheldur:
Hitaeiningar 227 kkal Prótein 36 g
Kolvetni 12 g Fita alls 4 g
Mettuð fita 1 g Trefjar 5 g
Natríum/salt 435 mg/1,1 g Kólesteról 71 m