Ofnbökuð lúða

 

lúða
3 msk ólífuolía
1/2 msk smjör, brætt
1 msk sítrónusafi
2 msk díjon sinnep
2 hvítlauksgeirar
1/2 tsk salt
1 tsk svartur nýmalaður pipar
4 msk brauðrasp
3 msk parmesanostur

Blandið saman olíu, smjörlíki, sítrónusafi, sinnepi, hvítlauk, salt, pipar í skál. Bætið lúðunni saman við og geymið í kæli í 45 mín. Hitið í ofni í 200°C setjið fiskblönduna í eldfast mót, jafnið sýrðum rjóma yfir. Stráið brauðraspi og parmesanosti ofan á og bakið í 20-25 mín. Berið fram með kartöflusalati/og eða fersku salati.