Ofnbökuð keila á
portúgalska vísu
1 kíló keila, roðlaus og beinlaus, skorin í stóra
gúllasbita.
Keilan sett í marineringu úr eftirfarandi.
200 g laukur, gróft saxaður
100 g svartar ólifur, skornar í sneiðar
100 g sólþurrkaðir tómatar
salt og hvítur pipar
kóríander
basilikum
timjan
2 dl ólívuolía
Fiskurinn látinn marinerast í tvo tíma. Síðan látinn í eldfast mót og osti stráð yfir. Settur í 200 gráðu heitan ofn í 20 mínútur. Borðað með grænmeti, hrísgrjónum eða kartöflum.