Ofnbakaður plokkfiskur
100 gr smáttskorinn laukur
100 gr smjör
100 gr hveiti
5 dl mjólk
500 gr soðnar kartöflur
500 gr soðinn fiskur
salt og pipar
Hitið laukinn í smjörinu þar til hann er orðinn glær, stráið hveitinu yfir og hrærið vel saman. Bætið mjólkinni smátt og smátt saman við og látið sjóða. Verið búin að skera kartöflurnar og fiskinn hæfilega smátt, og setjið út í sósuna og hitið. Kryddið með salti og pipar. Setjið í eldfast mót, lagið hollander sósu eða góða mjólkur sósu, setjið sósuna yfir fiskistöppuna og stráið rifnum osti yfir, brúnið í ofni við meiri yfirhita og berið fram með rúgbrauði og smjöri