Ofnbakaður fiskur með rækjusósu og fetaosti

6-700 g fiskflök, roð- og beinhreinsuð
nýmalaður pipar
salt
50 g smjör
4 msk hveiti
1/2 tsk paprikuduft
1/4 tsk karríduft
500 ml fisksoð eða vatn og fiskkraftur
250 g rækjur
300 g spergilkál
1 gul eða rauð paprika
100 g fetaostur, mulinn
klípa af oregano

Ofninn hitaður í 200 gráður. Fiskurinn skorinn í bita, kryddaður með
dálitlum pipar og salti og raðað í eldfast fat. Smjörið brætt í potti,
hveiti, papriku og karríi hrært saman við og látið krauma í 1-2 mínútur, en
þá er soðinu hrært saman við smátt og smátt og sósan bökuð upp. Hrært þar
til hún er alveg slétt og síðan er hún látin malla við hægan hita í um 5
mínútur. Þá er hún krydduð með pipar og salti og síðan er hálffrosnum
rækjunum hrært saman við og potturinn tekinn af hitanum. Spergilkálinu skipt
í kvisti og paprikan fræhreinsuð og skorin í ræmur. Dreift yfir fiskinn.
Rækjusósunni hellt jafnt yfir og síðan er fetaosturinn mulinn yfir allt
saman, svolitlu oregano stráð yfir, sett í ofninn og bakað í um 20 mínútur,
eða þar til yfirborðið er byrjað að taka lit og fiskurinn og grænmetið er
soðið í gegn. Borið fram með góðu brauði.