Ofnbakaður saltfiskur með engifer og hvítlauk í tómat ásamt
kartöfluflögum
Fyrir 4.
Hráefni:
800 g útvatnaður saltfiskur
½ lítill laukur
50 g sveppir
hnífsoddur af karríi
3 tsk. smátt skorið ferskt engifer
2 tsk. saxaður hvítlaukur
1 dl hvítvín (má sleppa)
500 g niðursoðnir tómatar
2 dl rjómi
4 bökunarkartöflur
Aðferð:
Laukur og sveppir kraumaðir í potti. Karrí, engifer og hvítlaukur sett út í og
niðursoðnir tómatar og
látið malla í góða stund. Síðan er rjómanum bætt út í. Saltfiskinum er velt upp
úr hveiti
og hann brúnaður á pönnu og látinn bakast í ofni við 180°C í um það bil 10
mínútur.
Bökunarkartöflurnar eru skornar í skífur og kryddaðar með óreganó, timjan og
basil. Þær eru svo steiktar
á pönnu og bakaðar í ofni við 180°C í 10-15 mínútur.
