Ofnbakaður saltfiskur
Fyrir 4 frá Hönnu Maríu Karlsdóttur

800 g saltfiskur (þykkir bitar)
4 stórar kartöflur
2 laukar
½ kúrbítur
1 græn paprika
1 rauð paprika
4-6 hvítlauksrif
nokkrar ólífur
rósmarín
ólívuolía
basil
steinselja

Veltið saltfiskinum upp úr hveiti og steikið í tvær mínútur á hvorri hlið og leggið til hliðar. Skerið kartöflur í báta og steikið á pönnunni, kryddið með rósmaríni og smá salti, setjið í eldfast mót. Steikið því næst lauk, paprikur og kúrbít, setjið í eldfasta mótið. Raðið síðan fiskinum þar ofan á og skreytið með nokkrum ólífum. Bakið í ofni í um 40 mínútur við 180 gráður.

Meðlætið:
Blandið saman 2 dl af ólífuolíu, hvítlauk, hálfu búnti af basilíku og hálfu af steinselju. Búið til mauk úr þessu og berið fram með fiskinum. Þar liggur galdurinn