Ofnbakaður saltfiskur með grænmetisblöndu

Hráefni
750 g saltfiskur
100 g tómatar
100 g blaðlaukur
1 stk. gul paprika
50 g grænar ólífur
6 stk. hvítlauksgeirar
1 dl ólífuolía
pipar
Aðferð
Hafið saltfiskinn vel útvatnaðan og roð- og beinlausan. Skerið hann í fjóra
jafnstóra bita. Skerið tómata, blaðlauk og papriku í frekar grófa bita. Skerið
ólífurnar í tvennt og takið steinana úr. Afhýðið og saxið hvítlaukinn fínt.
Hitið ólífuolíu í potti, hellið öllu grænmetinu í pottinn og kraumið í um 5 mín.
Setjið grænmetið síðan í eldfast mót, leggið saltfiskinn ofan á og kryddið með
svörtum pipar. Bakið réttinn í ofni við 180°C, í um 8 mín., og berið fram með
hvítlauksbrauði.