Ofnbakaður lax með eplum og ólífum (fyrir 4)

600 gr nýflakaður og roðfléttur lax, skorinn í fjögur jafn stór stykki
1 epli, skorið í þunna báta
100 gr steinlausar og grófhakkaðar grænar ólífur (ef til vill fylltar með möndlum, papriku eða hvítlauk)
Nýmalaður svartur pipar
Safi úr sítrónu

Raðið laxabitunum í ofnfast fat og þekjið með eplabátum og ólífjum ásamt pipar.
Bakið við 170°C heitum ofni (forhituðum) og takið út eftir nákvæmlega 8 mínútur.

Heimabakað heilkornabrauð er gott meðlæti, og létt salat eða gufusoðið grænmeti.