Nammifiskur Söndru
Fyrir 5 til 6 manns


850 g roðflett og beinhreinsuð ýsa
1 askja sveppir
1 laukur
1 gul paprika
¼ lítri rjómi
Rifinn ostur
Extra virgin ólífuolía
Knorr Provencale-krydd
1 teningur oksekraft frá Knorr

Aðferð:
Fiskurinn er skorinn í hæfilega stóra bita og raðað í eldfast mót, því næst er fiskurinn kryddaður hæfilega með Provencale. Laukurinn, paprikan og sveppirnir skornir niður og steiktir á pönnu upp úr ólífuolíunni. Síðan er rjómanum hellt út á og kraftinum bætt út í. Þetta er svo soðið niður og hellt yfir fiskinn. Rifnum osti er svo stráð yfir og þetta er svo sett inn í ofn og bakað í um 25 mínútur við 200° C. Gott er að bera fram með þessu ferskt salat, hvítlauksbrauð eða ostabrauð. Mælt er sérstaklega með því að hvítvín sé drukkið með þessu, einna helst Pinot Grigio.