Nætursöltuð ýsa með tómötum og maís
7-800 g nætursöltuð ýsuflök
1 laukur, saxaður smátt
2-3 tómatar, þroskaðir
3 msk hveiti
1 tsk paprikuduft
1 tsk kóríanderfræ, möluð
1/2 tsk túrmerik (má sleppa)
nýmalaður pipar
2 msk olía
300 g maískorn, fryst
250 ml matreiðslurjómi
e.t.v. svolítið salt
Fiskurinn roðflettur, beinhreinsaður og skorinn
í bita. Laukurinn saxaður
fremur smátt og tómatarnir helmingaðir, fræhreinsaðir og skornir í ræmur.
Hveiti, paprikudufti, kóríander, túrmeriki og pipar blandað saman og
fiskinum velt upp úr blöndunni. 1 msk af olíu hituð á pönnu (helst húðaðri)
og laukurinn látinn krauma í henni við meðalhita í nokkrar mínútur, þar til
hann er meyr. Tekinn upp með gataspaða og settur á disk. 1 msk af olíu bætt
á pönnuna, hitinn hækkaður og fiskurinn steiktur í 1-2 mínútur á annarri
hliðinn. Snúið, tómötunum bætt á pönnuna og síðan er afganginum af hveitinu
hrært saman við laukinn og hann settur aftur á pönnuna ásamt maísnum.
Rjómanum hellt yfir, hitað að suðu og látið malla í örfáar mínútur, eða þar
til fiskurinn er rétt soðinn í gegn og grænmetið heitt. (Einnig má taka
fiskinn upp með spaða og setja á fat en sjóða sósuna og grænmetið í nokkrar
mínútur í viðbót.) Sósan smökkuð til með pipar og e.t.v. salti. Borið fram
t.d. með salati.
Maísinn passaði nokkuð vel hér en það mætti nota ýmislegt grænmeti í
staðinn. Gerið mér bara einn greiða: Ekki kalla maísinn gular baunir. Þetta
eru ekki baunir. Gular baunir er allt annað. Ég var að leita að gulum baunum
í Nóatúni um daginn og hitti afar hjálplegan ungan starfsmann sem teymdi mig
framhjá nokkrum rekkum og benti hróðugur á maísdósir. Gulu baunirnar sem ég
hafði verið að spyrja um voru aftur á móti hálfum metra frá þeim stað sem
hann stóð á þegar spurningin var borin fram.