Marineraður steinbítur með grilluðu eggaldini


600 g steinbítur, roðlaus og beinlaus (einnig má t.d. nota hlýra, skötusel eða stórlúðu)

Marinering:
2-3 tsk. saxað, ferskt engifer
1 hvítlauksrif, saxað
1 rauður chili, fræhreinsaður og saxaður
2/3 dl sesamolía
1 dl kornolía
2/3 dl kókosmjólk úr dós
1 msk. sojasósa
1 límóna, börkur af einni límónu og safinn
1-2 eggaldin

Aðferð:
Blandið öllu sem á að vera í marineringunni saman í skál og hrærið vel saman. Takið frá smáhluta
af marineringunni fyrir sósuna á eftir. Sneiðið steinbítinn í sneiðar, setjið á fat. Hellið marineringunni
yfir fiskinn og veltið honum í blöndunni þar til hún hefur hulið allan fiskinn. Geymið í kæli yfir nótt eða minnst í 2-4
tíma. Sneiðið eggaldin í u.þ.b. hálfs cm sneiðar, leggið á fat og saltið. Látið standa í u.þ.b.10 mín. Þerrið
þá allan vökvann af og grillið sneiðarnar á vel heitu grilli til að fá fallegar grillrákir í þær. Grillið síðan
fiskinn á heitu grilli. Leggið sneið af eggaldini á fat, sneið af fiskinum og svo þannig koll af kolli. Setjið grillpinna í hvern fiskturn
til að þeir haldi sér.

Sósan:
1 hluti marinering
1 hluti kókosmjólk úr dós
1 msk. saxað ferskt kóríander

Blandið öllu vel saman í skál og hellið yfir fiskinn, heitan. Ef sósan á að vera heit, sjóðið þá einn hluta
vatn í potti, hellið marineringunni og kókosmjólkinni saman við og þykkið með maizenamjöli. Hrærið saman við fersku kóríander rétt
áður en borið er fram. Berið fram með hrísgrjónum, ferskum baunaspírum eða salati og til dæmis mango-chili dip sósu
(fæst tilbúið í öllum helstu verslunum).