Lúðuspjót á grillið með kúskús
(fyrir 4)
700 g lúða, skorin í bita
1 paprika eða lítill kúrbítur
1 rauðlaukur
Kryddlögur:
3 hvítlauksrif
1 msk kummin (cumin)
1 tsk pipar
3 msk sítrónusafi
2 msk matarolía
4 msk myntublöð
2 msk meriam
Blandið saman því sem fer í kryddlöginn og hellið honum yfir lúðubitana. Látið
standa helst í a.m.k. 1 klst. Skerið grænmetið í frekar stóra bita. Þræðið
fiskinn og grænmetið upp á grillspjót og grillið í 4-5 mínútur á hvorri hlið.
Penslið með kryddleginum á meðan grillað er.
Kúskús:
2 ½ dl kúskús
1 tsk kummin (cumin)
½ tsk pipar
1 paprika
4 msk steinselja, söxuð eða klippt
Sjóðið kúskúsið samkvæmt leiðbeiningum á pakka en notið matarolíu í stað smjörs.
Kryddið með pipar og kummini. Saxið papriku og blandið ásamt sama við
kúskúsið