Lúða á hrísgrjónabeði með tómatsalsa
(fyrir 6)
1 kg lúða
½ dl heilhveiti
1 msk matarolía
½ tsk salt
Pipar
Skerið lúðuna í hæfilega bita. Kryddið heilhveitið og veltið upp úr
hveitiblöndunni. Hitið olíu á pönnu og gegnsteikið lúðubitana.
Hrísgrjón:
2 ½ dl hrísgrjón eða hýðishrísgrjón
1 msk matarolía
2 hvítlauksrif, söxuð
250 g kúrbítur, gróft rifinn
1 búnt steinselja, söxuð
½ sítróna, safinn
Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Hitið olíuna og mýkið
hvítlauk og kúrbít í henni og blandið saman við hrísgrjónin. Að lokum er
sítrónusafa og steinselju bætt út í.
Tómatsalsa:
5 stk tómatar, stórir eða ½ dós niðursoðnir (um 400 g)
1 laukur, lítill
1 chilipipar
grænn pipar (ef vill)
(ath. Best er að útbúa sósuna á undan fiskinum)
Fræhreinsið chilipiparinn og fínsaxið ásamt lauk og tómötum. Hitið í potti og
piprið (ef vill). Berið fram heitt eða kalt. Hægt er að kaupa tilbúna salsasósu.
Lúðan er borin fram með hrísgrjónum, tómatsalsa og sítrónubátum.