Léttur fiskréttur í hátíđarbúningi

Fiskur međ appelsínuberki og humarsósu. (Handa fjórum)

Hráefni:

400 g fiskflök

˝ tsk. salt

1–2 hvítlauksrif

1 tsk. matarolía

˝–1 dós matreiđslurjómi

˝ dl léttmjólk

1˝ msk. Oscar humarkraftur

rifinn börkur af ˝ appelsínu

5 stilkar fersk timjanlauf eđa 1 msk. ţurrkuđ

4–5 rćkjur og 3 rćmur rifinn

appelsínubörkur til skrauts á hvert fiskstykki

Ađferđ:

Hreinsiđ fiskinn, skeriđ í međalstór stykki og stráiđ salti yfir. Merjiđ hvítlaukinn og mýkiđ í olíunni. Bćtiđ matreiđslurjómanum, léttmjólkinni, humarkraftinum, appelsínuberkinum og timjanlaufunum á pönnuna. Sjóđiđ augnablik og hrćriđ í á međan. Leggiđ fiskstykkin á pönnuna og látiđ ţau sjóđa í sósunni ţar til fiskurinn er á mörkum ţess ađ vera hvítur í gegn (opniđ eitt fiskstykkiđ í miđjunni til ađ sjá hver stađan er). Gćtiđ ţess ađ ofsjóđa ekki, fiskurinn heldur áfram ađ sjóđa í eigin safa eftir ađ hann hefur veriđ tekinn af hitanum. Skreytiđ fiskstykkin međ rćkjum og rifnum appelsínuberki. Beriđ fram međ sođnum kartöflum eđa hrísgrjónum, grćnmetissalati og snittubrauđi.

Hátíđarútgáfa:

Ţessa uppskrift má gera ađ hátíđarmat međ ţví ađ bćta humri út í hana og litli humarinn sem fćst í stórmörkuđum er bćđi ágćtur og ódýr. Skelflettiđ hann og hreinsiđ og bćtiđ honum út í réttinn á pönnunni síđustu 2 mínútur suđutímans. Timjankartöflur eru góđar međ ţessum rétti ef tími vinnst til en góđar sođnar kartöflur eđa hrísgrjón eru líka góđ međ.