Laxateinar með tómat-basilíkuolíu

700 g laxaflak, roðflett og beinlaust
2 kúrbítar
nýmalaður pipar
salt
125 ml ólífuolía, helst jómfrúarolía
200 g kirsiberjatómatar
hnefafylli af basilíkublöðum
1/2 sítróna

Grillið í ofninum hitað. Laxinn skorinn í teninga, 2-3 cm á kant (best er að
nota þykkt flak, ekki stirtlustykki). Kúrbíturinn skorinn í mjög þunnar
sneiðar eftir endilöngu með ostaskera eða flysjunarjárni. Laxinn kryddaður
með pipar og salti, kúrbítssneið vafið um hvern bita og þeir síðan þræddir
upp á teina; ef notaðir eru tréteinar er best að leggja þá í bleyti í kalt
vatn í a.m.k. hálftíma áður svo þeir brenni ekki. Penslaðir með olíu og
kryddaðir ögn meira. Teinunum raðað á grind sem höfð er yfir ofnskúffu og
þeir svo grillaðir í 5-7 mínútur fremur nálægt ristinni; snúið nokkrum
sinnum. Á meðan eru tómatarnir saxaðir og settir í skál. Basilíkan tætt
niður eða söxuð og hrært saman við ásamt olíu, pipar (ekki spara hann) og
salti. Bragðbætt með 1-1 1/2 msk af nýkreistum sítrónusafa og hrært vel
saman. Þegar laxinn er tilbúinn eru teinarnir settir á hitað fat, dálitlu af
olíunni ausið yfir og afgangurinn borinn fram með.