Lax og hlýri að hætti kokka víns og Skljar
Uppskrift fyir 4
FISKITVENNA
Lax og hlýri, 200 g á mann með roði.
Steikið á pönnu með olíu, salti og pipar. Eldað á roðinu í um það bil 2 mínútur
og 1 mínútu á hinni hliðinni og setjið í
200° C heitan ofn í 4-5 mínútur.
SÍTRÓNUGRASSÓSA
1 stk. sítrónugras (má nota niðursoðið)
50 g saxaður laukur
75 ml hvítvín
1 tsk. túrmerik
100 ml fisksoð
100 ml rjómi
2 msk. ólífuolía
2 msk. smjör
Skerið sítrónugras í litla bita. Setjið það því næst í pott ásamt lauk, olíu og
túrmerikinu. Setjið hvítvín sett út í, því næst fiskisoð. Setjið rjóma síðast út
í ásamt smjörinu. Þykkt er háð smekk.
GRÆNMETI
150 g zucchini
150 g sellerírót
150 g gulrætur
smjör, salt og pipar
Skerið í þunna og mjóa strimla og steikið á heitri pönnunni með smjöri. Eldið í
um það bil 1 mínútu.
FONDANT KARTÖFLA
4 bökunarkartöflur
1 stk. kjúklingakraftur og vatn
smjör, salt og pipar
Skerið kartöflurnar í eins kubba og steikið upp úr olíu svo þær brúnist. Setjið
þær því næst í eldfast mót
og hellið vatni og krafti í mót svo það nái að helmingi kartöflunar. Eldið í 35
mínútur við 150° C.
KRYDDJURTASALAT
1 poki af lollorosso
dill
kerfill
koríander
graslaukur
sítróna
olía og salt
Skolið salatið og pillið í hæfilega stærð. Takið kryddjurtirnar af stilkum og
blandað saman í hæfilegu magni við salat.
Setjið sítrónusafa,salt og olíu út í eftir smekk.
