Lax í kókoskarrísósu
700 - 800 g laxaflak
1 dós (450 ml) kókosmjólk
2 msk taílenskt karrímauk (Thai Curry Paste), eða eftir smekk
safi úr 1/2 sítrónu
1 tsk hrásykur (má sleppa)
salt
kóríanderlauf (má sleppa)
250 g sykurbaunir
soðin hrísgrjón
Roðflettið og beinhreinsið laxinn og skerið hann í hæfilega stór stykki. Setjið kókosmjólk og karrímauk í víðan pott og hitið að suðu. Látið malla í nokkrar mínútur og bragðbætið með sítrónusafa, hrásykri og salti eftir smekk. Setjið svo laxabitana útí og látið malla í 6-8 mínútur, eða þar til laxinn er rétt eldaður í gegn, snúið bitunum einu sinni. Bætið dálitlu söxuðu kóríanderlaufi út í þegar 1-2 mínútur eru eftir af suðutímanum. Sjóðið sykurbaunirnar í saltvatni í um 2 mínútur og hellið þeim síðan í sigti. Berið laxinn fram í sósunni. Berið hrísgrjónin og sykurbaunirnar fram og skreytið með kóríander.