Kreólabakaður skötuselur með rótargrænmeti

750 g skötuselur
100 g sellerírót
100 g steinseljurót
100 g kartöflur
100 g rauðbeður
2-3 msk ólífuolía
salt og pipar


Kreóla kryddblanda
2 msk salt
1 msk hvítlauksduft
1 msk svartur pipar, grófmalaður
1 tsk hvítur pipar, grófmalaður
2 msk fersk basilíka
2 msk ferskt timjan
1 dl ólífuolía

Skerið skötuselinní fjóra janfa bita. Blandið kreólakryddblönduna: saxið niður basilíku og timjan og hrærið svo öllu kryddinu saman við olíuna. Þekið skötuselinn með kryddblöndunni og marinerið í 30 mín. Skerið sellerírót, steinseljurót, kartöflur og rauðbeður í um 2 cm teninga. Hitið olíu í potti, setjið grænmetið út í og látið krauma í um 40 mín. Smakkið til með salti og pipar. Bakið skötuselinn í ofni við 200°c í um 8 mín. Setjið síðan rótargrænmetið á disk og skötuselinn ofna á. Berið fram með jógúrtsósu og góðu salati.


Jógúrtsósa

4 dl hrein jógúrt
100 g agúrka
1 tsk chiliduft
1 tsk hvítlauksgeiri
1/2 tsk aromat


Afhýðið og fínsaxið hvítlauk ásamt agúrku og blandið saman við jógúrt, ásamt chilidufti og aromati.