Krabbakökur Fylgifiska
400 g ýsa
400 g krabbakjöt
200 g surimi
1 stk. rauðlaukur
3 stk. hvítlauksrif
2 stk. rauð chilialdin
2 msk. sæt chilisósa
2 msk. sesamolía
4 límónulauf
ca 30 g kóriander
ca 30 g sæt basilika
1 msk. grænmetiskraftur
4 msk. sesamfræ
nýmalaður pipar og salt eftir
smekk
2 msk. hveiti
3 msk. pankó-rasp
Olía til steikingar
Maukið ýsu, krabbakjöt, surimi, lauk og hvítlauk í matvinnsluvél. Smátt söxuðu
chili, kóríander, basil og límónulaufum bætt út í hakkið, ásamt sætri chilisósu
og sesamolíu. Hrærið vel saman, bætið grænmetiskrafti og sesamfræjum út í.
Saltið og piprið eftir smekk. Bætið síðast í hakkið hveiti og pankó-raspi.
Steikið í heitri olíu.